Skattþrep í staðgreiðslu

Frá 1. janúar 2020 var tekinn upp þriggja þrepa staðgreiðsluskattur. Það þýðir að einstaklingar með greiðslur frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa að gera ráðstafanir til þess að rétt hlutfall skatts sé dregið af launum þeirra og forðast þannig skattskuld við álagningu.

Staðgreiðsluhlutfallið er eftirfarandi:

SkattþrepTekjubil Hlutfall 
 Skattþrep 1Af tekjum 0 – 336.916 kr. 35,04%
 Skattþrep 2Af tekjum 336.917 – 945.873 kr.   37,19%
 Skattþrep 3Af tekjum yfir 945.873 kr.  46,24%

Ábyrgð launamanna

Hver og einn launamaður ber ábyrgð á að gefa sínum launagreiðanda réttar upplýsingar til að tryggja að rétt staðgreiðsluhlutfall sé dregið af laununum og að nýting persónuafsláttar sé með réttum hætti.

Fari mánaðarlaun yfir 336.916 kr. hjá einum launagreiðanda þarf að reikna staðgreiðslu af launum hjá öðrum launagreiðendum í næsta skattþrepi fyrir ofan. Fari mánaðarlaun yfir 945.873 kr. þarf að reikna staðgreiðslu af þeim hluta sem fer yfir það mark í þrepi þrjú eða 46,24%.

Deila pósti